...ég hlýt því að vera snælduvitlaus:D
16.09.2006 09:58:53 / elín adda

ný bloggsíað

komin með nýja bloggsíðu... www.addas.bloggar.is kíkiði ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 19:03:02 / elín adda

lélegastibloggari í heimi...

ég tilkynni mig hér með lélegasta bloggara í heimi. hér með er þessari ágætu síðu lokað þar til ég flyt suður og vonast ég þá til að geta flutt ykkur fréttir úr höfuðborginni að minsta kosti vikulega. þangað til þá.. adios

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 19:22:32 / elín adda

Á Spáni er gott að djamma og djúsa

Sælt veri fólkið... allt gott að frétta frá Spáni... verð alveg svaka brún þegar ég kem loksins heim:D Alltaf nóg að gera hérna en við stelpurnar, Kristín, Anna og Sonja erum búnar að vera í alveg rosalegu letikasti og ekki búnar að gera neitt í kvöld. ég tók mig reyndar til og eldaði pasta, með sósu og skinku handa okkur en ég verð að segja að ég dáist af stelpunum að hafa geta étið þetta.. mér fannst það ekkert svaka gott:S

er að fara að kafa. Hlakka svo til að ég er alveg að deyja.. held að það sé alveg magnað og svo á föstudaginn erum við svo að fara að kíkja til Barcelona:D í sma´verslunarleiðangur:D

 en jæja heyri í ykkur seinna, þið fáu sem nennið að lesa þetta blogg:S

 kv. Elín


» 13 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 19:46:04 / elín adda

Salou á fimmtudaginn

Jæja nú er komið að því .. ég er útskrfuð, komin inn í háskóla og er á leið í útskriftarferð á fimmtudaginn með fríðu föruneyti, það verður án efa mjög gaman.

Hef nú reyndar ekki margt að segja, því yfir seinustu dögum hefur legið mikill sorg og þungi, en loksins hafa þeir nú fundið hann Pétur okkar og er það mikill léttir, því óvissan var verst af öllu... maður gat varla sofið á nóttunni og það fyrsta sem ég gerði á hverjum einasta morgni var að drífa mig í tölvuna og leita hvort þeir hefðu ekki örugglega fundið hann... Þekkti Pétur nú ekkert rosalega vel, en hann var alltaf svo hress og spjallaði alltaf við mann. Hans á eftir að vera sárt saknað og dáist ég að styrk fjölskyldu hans, því þetta hlýtur að hafa verið þeim mjög erfitt..

Ég sendi því fjölskyldu, ættingjum og vinum Péturs mínar innilegustu samúðarkveðjur

Elín


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 00:08:50 / elín adda

svartur köttur!!!

það hefur nú fátt á daga mína drifið nema hvað mér er ennþá alveg hrykalega illt í rassinum.. er viss um að ég hafi náð að bráka eða brjóta eitthvað.. en mér tókst næstum að brjóta ýmislegt fleira en rófubeinið á mér rétt áðan.. það byrjaði með því að ég þegar ég er að keyra frá Fellabæ skoppaði allt í einu svartur köttur fyrir bílinn.. ég hugsaði einmitt þá, jæja nú á eitthvað eftir að gerast.. keyri síðan Heiðarendann í mínu mesta sakleysi og er að fara að mæta bíl þannig að ég tek háu ljósin af,  og allt í einu er ég stödd inn í hóp af hreindýrum. ég nauðhemlaði og svigaði framhjá einu þeirra. og stoppaði... þau hreyfðu sig ekki... ekki eitt einasta af þeim... þau stóðu bara þarna ca. 30 stykki og gláptu á mig... ég lagðist á flautuna til að komast í gegnum hópinn því þau voru þarna í haug beint f. framan bílinn minn.. í kurteisisskyni hafa þau nú ákveðið að hleypa mér í gegn þannig að ég keyrði áfram heim á leið í þvílíku sjokki lít svo í baksýnisspegilinn og þar nauðhemlaði bíllinn sem ég mætti.. þau voru þá komin aftur upp á veginn til að bögga hinn bílstjórann... þarna var ég næstum búin að ná mér í hreindýrasteik í matinn næstu 10 árin en sem betur fer slapp ég... það var engu líkara en að þau væru að mótmæla einhverju með þessu umsátri sínu á miðjum þjóðvegi eitt... kanski banni við lausagöngu stórgripa sem barst inn um lúguna í seinustu viku.. hver veit.. en ég veit það að þessar skepnur eru stórhættulegar.

jæja þegar ég leit svo á hversu margir hefðu heimsótt síðuna mína í dag stóð 13.. ég ætti því að fara að koma mér í rúmið áður en eitthvað alvarlegra kemur fyrir mig, er orðin frekar hjátrúafull núna..

kv. Elín rófubrotna


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 21:40:58 / elín adda

rassinn minn

ég hef bara sjaldan á ævinni fundið jafn mikið til í einvherjum líkamshluta eins og mér finnur til í rassinum akkurat núna... ég var upp í fjárhúsum að marka með frænda mínum og var búin að finna mér þetta fína garðaband til að sitja á og skrifa í rollubókina þegar hann kemur og hlammar sér við hliðina á mér og garðinn brotnaði undan okkur og ég hlammaðist beint á rófubeinið á neðra garðabandið og held að ég sé varanlega sködduð á rassi eftir þetta.. ég finn svo til get ekki beygt mig sest legið á bakinu eða neitt.. gjörsamelga ónýt. lá við að ég gréti af sársauka lengi á eftir... en jæja ég ætla að koma mér í rúmið því það þarf blóð svita og tár til að halda mér sitjandi fyrir framan tölvuna... ááááíiii.... kv. Elín

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 20:56:01 / elín adda

dimmisjón, próf og meiri próf

Jæja nú er dimmisjón búin og allir sjálfsagt í sæluvímu ennþá eftir þetta frábæra djamm. Fá orð sem geta lýst því hversu gaman þetta var... þvílík snilld. :D:D:D Ég skemmti mér svo vel, tjaldaði með dyggri hjálp Ella frænda;) okkur fannst þetta ægilega fyndið en ekki alveg jafn fyndið þegar kom að því að taka það niður daginn eftir.. langaði alveg ægilega að bara skilja það eftir. En þar sem ég ætla að tjalda um verslunarmannahelgina fannst mér gáfulegra að hirða það upp. Því miður náðum við ekki að vekja alla kennarana eins og ætlunin var vegna kvartana íbúa... hef Hjalta löggu grunaðan um að hafa hringt sjálfan þar sem partýið þar sem við vorum var nú bara beint á móti honum. Kom hann síðan galvaskur á eftir okkur strax við hús númer tvo og sagði okkur að hypja okkur... þá náttla drifum við okkur bara í Fellabæ city þar sem fólkið virtist vera mun friðsamlegra og leyfði okkur að láta þar öllum illum látum.. fór meira að segja og vakti Lindu og Kára krúttin mín, sem voru kanski ekki alveg jafn ánægð með heimsók um miðja nótt í vinnuviku:D Þaðan fórum við upp í bakarí þar sem ég fékk kleinur sem komu sér mjög vel í sultinu klukkan 6 um morguninn. :P þaðan lá leiðin siðan aftur í Egilsstaði þar sem við kvöddum okkar dyggu bílstjóra Þröst og Nökkva og röltum um bæin í leit að fórnarlömbum til að vekja. Fórum í hlaupískarðið í skrúðgarðinum, létum illum látum fyrir utan skólann langt fram á morgun, fórum svo í söluskálan og fengum okkur að eta og svo heim í háttin um hádegi á föstudeginum.. mmmm... djöfull var gott að sofa:D

Á laugardaginn var síðan námsmaraþon sem ég var nú ekkert rosadugleg í:$og skammast mín mikið fyrir það. En nú eru prófin gengin í garð eitt búið, þrjú eftir.. svo bara útskrift og svo brúnkumeðferð á SALOU.... ef ég verð ekki brún verð ég voðalega sár:^) Væri gaman að prófa það einhvertíma:S

Þangað til næst... Elín hin hvíta kveður


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 09:14:02 / elín adda

dimmetering í kvöld

Jæja nú er þetta alveg að verða búið.. aðeins 4 próf eftir og þá er ég orðin stúdent.... ég er alveg að missa mig yfir þessu öllu saman, trúi því eiginlega ekki að ég sé að útskrifast þar sem mér finnst ég vera bara nýbyrjuð í menntaskóla. Í dag er seinast skóladagurinn minn, því okkur verður sjálfsagt ekki heypt inn í skólann á morgun:P dimmetering í kvöld.. það verður sko stuð, verður matur með kennurunum klukkan 7 í kvöld... svo partý hjá Steinari og Valdísi og svo förum við á rúntinn á trukknum... vá nú hlakka ég ennþá meira til.. en jæja ég hef s.s. ekkert gáfulegt að segja en kem vonandi fljótlega með blogg af dimmeteringunni.. kv. Elín

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 21:49:33 / elín adda

loksins, loksins...

Loksins blogg ég aftur eftir mikið og langt hlé... var reyndra mikið að pæla í því að hætta þessu rugli því ég finn mér aldrei tímann til að blogga.. en nú sit ég í henni Reykjavík og fann mér loksins tíma til að blogga, hér sit ég heima hjá honum yndislega bróður mínum og vorum að enda við að horfa á "In her shoes", mæli ekki með henni. Ég tók þá skyndiákvörðun þegar ég vaknaði klukkan hálf tíu í morgun að fara til Reykjavíkur, hafði hálftíma til að fara í sturtu og hafa mig til og svo var ég rokin í af stað til að missa ekki af  vélinni. Það sem verra var var að ég hafði engin föt út í sveit og hafði ekki tíma til að stoppa í Faxatröðinni þannig að ég fór bara í einhverjum lörfum og fór svo beint í Kringluna að versla... Fann síðan þessi gullfallegu föt fyrir útskriftina mína í topshop í Smáralind:D get ekki beðið eftir því að geta nota þau. Hugsið út í það.. ég er að útskrifast og fer í háskóla í haust.ég get ekki beðið. Þessi þrjú menntaskóla ár mín eru senn á enda og ég verð stúdent... vildi bara óska að þið mynduð líka komasuður með mér.. það verður svoldið einmanalegt án ykkar allra:S  Allir velkomnir í heimsókn til mín þegar ég flyt suður:D:D:D:D

blogga meira þegar ég er komin heim í sveitasæluna.. sjáumst hress í skólanum

kv. Elín


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 11:40:39 / elín adda

góðan og blessaðan daginn

Það er búið að vera alveg brjálað að gera hjá mér seinustu vikurnar þegar ég loksins komst í skólann aftur eftir veikindin:( og hef því ekki haft mikinn tíma til að blogga. En margt hefur á daga mína drifið...byrjaði þar seinustu helgi á því að kíkja á hetjuna þar sem ég skemmti mér alveg konunglega, á laugardeginum fórum ég og Anna svo niður á eskifjörð og Unnur eldaði alveg hreint dýrindis kjúkling handa okkur:D síðan var líka þetta fína partý á eftir og við stelpurnar hlupum út í búð og keyptum okkur ís , Diddó gerði mikið grín af okkur.. þetta væri eins og í barnaafmæli, allir með grænan hlunk;) Við skelltum okkur svo á ball þar sem stigin var trylltur dans langt fram á nótt og í þynkunni daginn eftir lágum við öll í einni kássu heima hjá Unni og spjölluðum.. Þetta minnti mig óhugnalega mikið á sumarið og ég fékk firðing í magann, ég hlakka svo til að geta gert þetta í sumar.. .bara legið saman í leti á sunnudögum og gert ekki neitt:D engin vinna enginn heimalærdómur... bara leti:D

á föstudaginn seinasta hélt Anna svo upp á afmælið sitt.. þetta var bara lítið og kósý... við stelpurnar fórum heim til hennar og tróðum okkur út á pítsu, kökum og nammi... mmmm... namminamm.... fórum svo á rúntinn en vorum fljótar að troða okkur í partý hjá honum Atla þar sem miðstöðin var biluð í bílnum og við allar að frjósa úr kulda. þar var ekki fyrr en um hálf fimm sem við Unnur drösluðum okkur heim dauðþreyttar og myglaðar... þrátt fyrir lítinn svefn mætti ég eldhress í vinnuna klukkan 9 í frábæru veðri út í Fossgerði... vá hvað ég skemmti mér vel í vinnunni... elska alla þessa litlu krakka, þau eru YNDISLEG... Þau láta mann hlakka til þess að mæta í vinnuna á laugardagsmorgnum;)

ég gerði svoldið voðalega týpískt á föstudaginn.. ákvað að skreppa í heimsókn til Linud og Kára í hádeginu og þegar þau fóru í vinnuna settist ég inn í bíl og byrjaði að leita að lyklunum mínum.. ég byrjaði að leita og leita og fann þá hvergi, þá fattaði ég það að ég hafði gleymt þeim inni og Kári búin að læsa og þau á bak og burt... ég var símalaus þannig að ég þurfti að labba út í olís og hringja í einhvern til að sækja mig... en þá mundi ég engin númer... ég byrjaði því bara að labba yfir og enginn vildi taka mig upp í þannig að ég labbaði alla leiðina heim og það tók mig hálf tíma:evil: Um kvöldið þegar ég sótti bílinn minn stoppaði löggan mig svo fyrir " að kvelja gangstéttarkantinn".... er það ólöglegt?:| ég var eitthvað utan við mig og ók kanski svoldið nálægt honum en ég sver ég snerti hann ekki.... löggunni hlýtur að hafa leiðst alveg rosalega á föstuaginn fyrst hún var að stoppa mig út af svona smotteríi...

yfir og út Elín


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 20:01:08 / elín adda

Góugleði

akkurat á þessari stundu streyma bílarnir í Brúarás... Allir á leið á Góugleði meðan ég ligg fárveik heima með bronkítis... það er alltaf eitthvað sem heldur mér frá því að njóta vellystinganna sem lífið hefur upp á af bjóða.... það virðist vera einhver regla sem segir til um það að ég eigi alltaf að vera veik þegar svona uppákomur eru... tvö seinustu jól (reyndar ekki jólin núna 2005) VEIK missti í bæði skipitin af annan í jólum ballinu og áramótaböllunum. Skólaferð til húsavíkur á 1. ári... VEIK... óvissuball á öðru ári... VEIK... muniði þegar hitabylgjan gekk yfir Ísland sumarið 2004, allir að stikna úr hita, hitamet voru slegin hægri vinstri í heila viku.... VEIK... og það ekkert smá lá inni með í lungunum og hóstaði upp lungu og lifur.... Ég virðist bara alltaf vera veik... þrátt fyrir það að þetta sé náttla bara lítið brot af mínum veikindum síðan ég byrjaði í menntaskóla... þarf vart að minna fólk á það þegar ég skar mig á blaði í fyrra og fékk heljarinnar sýkingu í sárið... puttinn á mér þrefaldaðist að stærð og ég þurfti að fara á sýklalyf til að drepa sýkinguna. Ef ég myndi fá endurgreiddann allan þann pening sem ég hef eytt í lækniskostnað og sýklalyf seinustu þrjú árin þá yrði ég milljónamæringur... má þar nefna að  læknisferðin mín í gær kostaði mig 4500 kr. takk fyrir pent:evil:

En ég ætla nú ekki að vera bitur því ég hef heyrt að það eigi að vera ball niður á eskifirði næstu helgi... sem er við hæfi þar sem ég keypti mér líka þennan glæsilega kjól í plögg í gær... ó mæ god hann er svo flottur að ég er búin að hengja hann upp á herðatré inn í herbergi og ég geri ekki annað en að horfa á hann allan daginn meðan ég ligg hérna upp í rúmi.:D Get ekki beðið að fara í hann og nota hann.

en jæja ég ætla aftur inn í herbergi að bryðja sýklalyf og horfa á kjólinn minn:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 22:07:24 / elín adda

Veik aftur....!!!!!

Nú er ég gjörsamlega að missa alla þolinmæði á heilsufari mínu... ég er veik... AFTUR... í annað skipitið í þessum mánuði... þetta lofar ekki góðu þar sem árið er rétt nýhafið... ég get nú reyndar kennt mér um þetta allt saman þar sem ég fór illa klædd á reiðnámskeið upp í Ketilsstaði á föstudaginn og var svoleiðis að frjósa í hel þar... vaknaði morguninn eftir með pínku hálsbólgu en ákvað að það myndi nú sleppa og fór og horfði á ístöltið út á Eiðum og þar frusu tærnar mínar gjörsamlega af.... þrátt fyrir veikindin ákvað ég SAMT að fara á Papaball og skemmti mér konunglega, en þegar átti að halda heim hafði einhver tekið jakkan minn og ég þurfti að labba heim á pislinu og ermalausum bol... gjörsamlega að FRJÓSA í hel.... auðvitað var ég síðan veik á sunnudaginn og er búin að liggja föst í rúminu síðan með snýtiklúta í annarri og hóstasaft í hinni... glæsilegur árangur...

En já helgin var snilld nema hvað það varð nú ósköp lítið úr þessu sleepover þar sem Sonja komst ekki einu sinni inn á ball heldur gisti hjá Helgu og Anna og Beggi gistu í Faxatröðinni... þvílík vitleysa.. verðum að bæta úr því einhvertíma seinna stelpur;) en nú verð ég að drífa mig í rúmið þ´vi það er farið að renna úr nefinu á mér ... bæbæ og hafiði það gott öll sömul.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 12:28:34 / elín adda

loksins,loksins....

Hef ekki veirð neitt sérstaklega dugleg við að blogga undanfarið en ég verð að fara að bæta úr því .... Nú eru opnir dagar í fullu og allt að gerast... fór á förðunarnámskeið í gær og í dag fer ég í bandý.... Svo verða allir að mæta á kaffihúsakvöld  í kvöld, þar sem Þorsteinn Guðmundsson mun skemmta ásamt fríðu föruneyti uppistandara...:D Unnur og Diddó voru að fara til Reykjavíkur en ég og Anna fórum ekki með, því í satðinn ætlum við að fara á PAPABALL um helgina... STUÐSTUÐSTUÐ.... ég ætla sko að skemmta mér konunglega.... Búin að bjóða Önnu og Sonju að gista hjá mér og það verður sko alvöru sleepover:D:D:D Er svo spennt að ég er að deyja.... segi frá viðburðum helgarinnar seinna.


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 22:23:53 / elín adda

afmæli, afmæli, afmæli

Hvað á sér eiginlega stað í apríl árhvert? foreldrar hafa greinilega verið mjög svo uppteknir í páskafríinu, því mér finnst sem allir eigi afmæli í seinnipart janúar og byrjun febrúar, á föstudaginn fór ég í þrefalt afmæli hjá þrem yndislegum manneskjum, Fannari, Þórörnu og Eyþór... til hamingju með 20. afmælið öll sömul. Þau héldu líka þetta heljarinnarpartý á Svarthvítu hetjunni seinasta föstudag og stóðu sig með ágætum sem gestgjafar... Frír bjór og ég er ekki frá því að hann hafi farið eitthvað illa ofan í mig því ég varð strax blindafull:S og ég var að fara að hjálpa til við að kenna litlum krökkum út í Fossgerði snemma morguninn eftir... . þetta geri ég aldrei aftur... mér leið svo illa að mér datt ekki einu sinni í hug að skella mér á bak og það þarf sko mikið til þess... er viss um að ég hefði flogið beint út á hlið hefði svo mikið sem reynt það því ég er alls ekki viss um að það hafi verið runnið af mér um morguninn.. er ekki frá því að ég sé ennþá svolítið eftir mig eftir þetta allt saman og tími til komin fyrir mig að koma mér í bólið... veriði sæl...

Elín


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 19:08:18 / elín adda

klukk

Fjögur störf sem ég hef unnið við:
- Á hótel Eddu á Eiðum
- Landsvirkjun
- Skúra hjá hreppnum
- Er að vinna á reiðnámskeiði núna

Fjórar myndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
- Lion King (klassi)
- Love actually
- Lord of the rings
- The incredibles(veit ekki alveg hvernig á að skrifa það:S)

Fjórir staðir sem ég hef búið á
- Hallfreðarstaðir
- Dalstrupvej í Danmörku
- Faxatröð 9 þar sem ég bý núna 
- Heimavist ME.

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla að horfa á:
- Desperate Housewifes
- Alias
- Family guy
- Lost..

Fjórir staðir sem ég hef ferðast til (í fríi):
- Danmörk..
- Færeyjar..
- Þýskaland..
- Canary Island

Fjórar vefsíður sem ég fer inná daglega:
- www.blog.central.is/elinadda
- www.kbbanki.is
- www.hotmail.com
- www.me.is

 Fjórar uppáhalds matartegundir:
- Hamborgarahryggur
- Nautalundir
- Fiskrétturinn hennar mömmu með hrísgrjónum og karrý
- Hvítlaukskryddað lambalæri að hætti mömmu:D

 Fjórir CD sem ég get ekki verið án:
-Ef ég á að segja eitthvað þá yrði það sennilega þessir tveir:
-12. ágúst (sálin)
-XY

 Fjórir staðir sem ég vildi frekar vilja vera á:
- Á sólarströnd..
- Í skóla í Danmörku
- Út í hesthúsum 
- Í brjáluðu partýi á Eskifirði;)

Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka:
-Helga systir
-Anna Sigurrós
-Mekkin
-Irma 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3